Valmynd
   Um okkur
   Myndasafn

Nú geta íþróttahús fest kaup á æfingatækjum fyrir Skólahreysti. Icefitness hefur hannað og þróað tækin og á að hengja þau á rimla í íþróttasölum.
Tækin eru fyrir upphífingar - armbeygjur - dýfur og hreystigreip.
Tækin eru einföld, sterk og auðveld í notkun. Settið er í sömu hlutföllum og keppnistæki Skólahreysti.

Þau eru smíðuð úr járnprófílum sem síðan eru pólyhúðuð. (máluð)
Upphífingatækið er með riflaða stöng en hreystigreipatækið með slétta stöng.
Armbeygju og dýfutækin eru með gúmmíhandföng.
Höfum einnig útbúið teyjur á upphífinga og dýfutæki, mismunandi langar.  þær þarf að panta sérstaklega.  Þær auðvelda lyftur á æfingum. 

Nokkrar myndir eru af tækjunum hér að neðan. Á næst efstu  myndinni sést þægileg uppstilling á tækjunum þegar þau eru ekki í notkun.  Þar sést einnig teyja. 

Verð :  Settið með fjórum tækjum kostar 115.000 kr  
Teyjur kosta báðar saman 11.500 kr. 
Verð eru án VSK. 

Þeir sem vilja nánari upplýsingar eða festa kaup á tækjunum sendið mail á skolahreysti@skolahreysti.is





Skólahreystisett  / Upphífingar - Dýfur - Hreystigreip - Armbeygjur 



Hreystisett í geymslu



Upphífingatæki - Breidd á slá 1m



Dýfutæki



Hreystigreipartæki - slétt stöng



Armbeygjutæki



Upphífingar / riffluð stöng - gott grip



Varamannabekkurinn er rétta hæðin undir fætur í armbeygjum, ca 35 cm. Gúmmí á handföngum.



Dýfur - gúmmí á handföngum



Hreystigreip - slétt stöng



Upphífingatæki með teygju - hægt að stilla teygju eftir stærð.



Dýfutæki með teygju - hægt að stilla eftir stærð.



Teygja á upphífingatæki



Teygja á dýfutæki



Þrautirnar
Úrslit móta
Hreystivellir
IceFitness
Landsbankinn er styrktaraðili Skólahreysti
Skólahreysti - info(hjá)skolahreysti.is - Facebook