Dagsetningar :
Reykjavík - Íþróttahúsið Austurbergi - 25.febrúar
3 riðlar
Suðurland kl.13:00
Breiðh./Grafarv./Grafarh./Norðlingah./Árbær kl.16:00
Vesturbær/Austurbær/Seltjarnarnes kl.19:00
Egilsstaðir - Íþróttamiðstöðin - 04.mars
1 riðill
Austurland kl.15:00
Akureyri - Íþróttahöllin - 11.mars
2 riðlar
Norðurland kl.15:00
Akureyri-Þelamörk-Húsavík kl.18:00
Kópavogur - Smárinn - 18.mars
3 riðlar
Vesturland-Vestfirðir kl.13:00
Kópav.-Mosfellsb.-Garðab.-Kjalarnes-Álftanes kl.16:00
Hafnarfjörður-Reykjanes kl.19:00
Úrslit - Reykjavík Laugardalshöll 29.apríl - 12 skólar
Sama fyrirkomulag verður á keppninni og 2009. Stigahæsti skólinn kemst áfram úr hverjum riðli. Stigahæsta liðið úr riðli frá Vesturlandi og Vestfjörðum kemst áfram í úrslit og því eru tvö lið að komast áfram úr þeim riðli.
Tvö stigahæstu liðin sem ekki komust áfram verða tekin inn í úrslit.
Ennþá vantar þátttökutilkynningar frá sumum skólum. Viljum hvetja þá skóla til að senda okkur netpóst á skolahreysti@skolahreysti.is og gefa upp nafn skóla,nöfn íþróttakennara, netföng og gsm.
Tveimur vikum fyrir mót, í síðasta lagi, þarf að skrá nöfn keppenda inn á Skolahreysti.is - þar undir " NAFNASKRÁNING" vinstra megin á opnunarsíðu.
Gaman er að sjá hve margir nýjir skólar sem aldrei hafa keppt áður eru búnir að tilkynna þátttöku.
RÚV gerir Skólahreysti góð skil í vetur og margt spennandi að gerast þar sem verður útskýrt aðeins síðar.
Viljum minna á reglur á Skolahreysti.is - þar er að finna allt um keppnina sjálfa.
Munum senda reglulega fréttabréf til kennara og því er mikilvægt að senda okkur póst/þátttökutilkynningu sem fyrst, þeir sem ekki eru búnir, til að fréttabréf berist til viðkomandi skóla/kennara. Þar útlistum við allt í sambandi við mótin mætingartímar, nöfn skóla ofl. Munum einnig alltaf setja fréttir inn á þessa síðu.
Hlökkum til að heyra frá ykkur og sjá. Endilega hafið samband ef spurningar eru.
Bestu kveðjur,
Andrés gsm 663-1111
Lára gsm 663-1112