Valmynd
Austurland 4.mars mæting ofl.

4.riðill í Skólahreysti MS 2010 - Egilsstaðir - litaskipting milli skóla
 
Appelsínugulur      Vopnafjarðarskóli
Ljósblár                 Grunnskólinn Egilsstöðum og Eiðum
Ljósgrænn             Fellaskóli, Fellabæ
Grænn                 GrunnskóliReyðarfjarðar
Fjólublár               Grunnskólinn á Eskifirði
Dökkblár               Nesskóli
Gulur                   Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar
Bleikur                 Grunnskólinn Stöðvarfirði
Lillablár                Grunnskólinn Breiðdalshreppi
Rauður               Grunnskóli Djúpavogs
Svartur                  Grunnskóli Hornafjarðar


Kl.14:00 Mæting keppnisliða, áhorfendur velkomnir á sama tíma.
Kl. 14:15 Innritun hjá Láru,keppendur fá boli og vesti - muna að skila vestum eftir keppni !
Kl. 14:30 Pétur dómari fer í gegnum þrautir og braut með keppnisliði.
Kl.15:00 Mót hefst með öflugum stuðningi stuðningsmanna og áhorfenda
Kl. 16:45 Mótslok

Vekjum þó athygli á að þrautir og keppnisbraut verður tilbúin kl.13:00 og þá er keppnisliðum velkomið að koma og æfa sig.  Mæting er í seinasta lagi kl.14:00

Allir keppendur fá medalíur og efstu þrjú liðin fá ostakörfur frá MS

Verðum með skyrdrykki í boði frá MS fyrir keppendur og íþróttakennara.
Það er mælst til þess að keppendur mæti í svörtum buxum en ekki skylda.

Við munum passa upp á að öll stuðningsmannalið fái pláss í stúku og geti setið saman.
 
Jónsi verður kynnir á gólfi, Ásgeir Erlendsson og Felix Bergsson eru umsjónarmenn hjá RÚV og fá að spyrja krakkana um eh skemmtilegt !  

Þættirnir verða fjórir og verða sýndir á RÚV á fimmtudögum í apríl.  Fyrsti þáttur verður sýndur 01.apríl og svo koll af kolli og endar svo með beinni útsendingu 29.apríl í úrslitum. 

Viljum minna keppendur og kennara á að fara vel yfir þrautir og reglur á skolahreysti.is. Auðveldur undirbúningur, en getur verið mjög mikilvægur.

Endilega hringið í okkur eða sendið okkur vefpóst ef eh spurningar vakna og eins ef við erum að gleyma að setja inn upplýsingar.

Bestu kveðjur, Lára gsm 663-1112 og Andrés gsm 663-1111


Þrautirnar
Úrslit móta
Hreystivellir
IceFitness
Landsbankinn er styrktaraðili Skólahreysti
Skólahreysti - info(hjá)skolahreysti.is - Facebook