Fyrstu þrír riðlar í Skólahreysti MS verða í dag 03.mars í Íþróttahúsinu í Smáranum
1.riðill Suðurland mót hefst kl.13:00 Mæting keppenda kl.12:00 - þá skal fá boli hjá ritara, fara yfir að nöfn séu rétt.
2.riðill Kópavogur,Garðabær,Álftanes,Mosfellsbær og Kjalarnes mót hefst kl.16:00 : Mæting keppenda kl.15:00 - kl.15:10 fá boli hjá ritara og fara yfir að nöfn séu rétt
3.riðill Hafnarfjörður og Reykjanes mót hefst kl.19:00 Mæting keppenda kl.18:00 - kl.18:10 fá boli hjá ritara og fara yfir að nöfn séu rétt.
Mótin eru u.þ.b ein klst og fimmtíu mínútur
Mæting skóla er klukkutíma áður en keppni hefst í viðkomandi riðlum. Þá er gott fyrir krakkana að kíkja á keppnissvæðið og æfa sig ef þeir vilja. Áhorfendur eru velkomnir á sama tíma.
Keppendur fara til ritara og fara yfir nafnaskráningu, fá bol sem þeir mega eiga og litaskipt vesti sem þeir skila til hans Krissa eftir mót. Krissi sér um keppendur á meðan mótið er. Keppendur geta spurt hann að öllu varðandi mótið. Varamenn fá einnig boli.
Allir keppendur fá medalíur og efstu þrjú liðin fá ostakörfur frá MS – orðið klassískt að fá ostakörfuna góðu
Það er mælst til að keppendur mæti í svörtum buxum en ekki skylda.
Jónsi verður áfram með okkur á mótunum og þáttastjórnandinn frá Rúv heitir Guðmundur Gunnarsson og var hann annar af þulunum á Eurovision nýliðnu. Hann mun taka viðtölin við krakkana.
Þættirnir verða fimm og verður fyrsti þáttur sýndur þriðjudaginn 22.mars. Úrslit verða svo 28.apríl með sama sniði og verið hefur. Bein útsending frá Laugardalshöll og tíu lið komast í úrslit úr tíu riðlum og svo verða tekin inn tvö uppbótarlið. Þau sem eru með bestan árangur í öðru sæti. Þættirnir voru fjórir í fyrra og afar hratt farið yfir efni. Við vonum að þar sem þeir eru fimm núna að þetta komi betur út en þetta er eh sem Rúv hefur alveg í sínum höndum.
Gangi ykkur vel í undirbúningi og við hlökkum mikið til að sjá ykkur öll. Endilega hringið í okkur eða sendið okkur vefpóst ef eh spurningar vakna.
Viljum minna keppendur og kennara að fara vel yfir þrautir og reglur á skolahreysti.is.
Bestu kveðjur, Lára gsm 663-1112 og Andrés gsm 663-1111