Snillingarnir hér að ofan eru frá Ísafirði. Þar voru þessir frábæru stuðningsmenn í brjáluðu stuði með Ívari Guðmundssyni hinum eina sanna
Næst komandi þriðjudag verður upprifjunarþáttur á Skjá einum kl.20:10. Sá þáttur saman stendur af þeim tíu liðum sem komin eru í úrslit. Sýndar verða þrautirnar sem krakkarnir fóru í gegnum og nokkur viðtöl. Jónsi og Andrés verða á útopnu í babbli í þættinum og mikið fjör. Megið sko alls ekki missa af honum.
Skólarnir sem komnir eru í úrslit eru eftirtaldir og verða með eftirtalda liti á keppnisvestum í Laugardalshöll :
Foldaskóli/rauður - Hagaskóli/blár - Lindaskóli/grænn - Heiðarskóli/appelsínugulur - Hvolsskóli/ljósblár - Gr.Fáskrúðsfjarðar/vínrauður - Gr.Siglufjarðar/ljósgrænn - Giljaskóli/brúnn
Grundaskóli/gulur og Gr.Ísafjarðar/bleikur
Úrslitin verða í Laugardalshöll fimmtudaginn 17.apríl og hefst bein útsending stundvíslega kl.20:00 og er til 22:00. Húsið opnar fyrir eldheitum stuðningsmönnum og áhorfendum kl.19:00
Keppendur geta komið og æft sig í brautinni frá kl.16:00 - 18:00. Keppendur skulu koma í innskráningu til Láru ritara kl.18:00 - alveg sama fyrirkomulag og í undankeppnum. Fá boli og vesti.
MS heldur áfram að bjóða keppendum og íþróttakennurum upp á orkumiklu skyrdrykkina og vítamínríku fjörmjólkina.
Nú er bara að fjölmenna í Höllina í réttu litunum og styðja sinn skóla. Allir velkomnir og að sjálfsögðu er FRÍTT inn.