Valmynd
Austurberg 5. mars



Næstu riðlar í Skólahreysti  MS  verða 05. mars í Íþróttahúsinu Austurbergi. 
 
Kl.13:00   Suðurland
 
Kl. 16:00   Breiðholt, Grafarvogur og Grafarholt
 
Kl.19:00   Vesturbær, Austurbær og Seltjarnarnes
 
Mæting skóla  er klukkutíma áður en keppni hefst í viðkomandi riðlum.  Þá er gott fyrir krakkana að kíkja á keppnissvæðið og æfa sig ef þeir vilja.  Áhorfendur eru velkomnir á sama tíma. 

Keppendur koma svo til ritara/Láru hálftíma áður en mót hefst, skrá sig inn, fara yfir nafnaskráningu, fá bol sem þeir mega eiga og litaskipt vesti sem þeir skila til hans Krissa eftir mót.  Krissi sér um keppendur á meðan mótið er.   Keppendur geta spurt hann að öllu varðandi mótið.    Aðstoðarmenn mega einnig fá boli. 
 
Allir keppendur fá medalíur og efstu þrjú liðin fá ostakörfur frá MS - enda kraftur í osti  
 
Það er mælst til að keppendur mæti í svörtum buxum en ekki skylda.
 
Okkur vantar ennþá nokkrar  nafnaskráninar.   Gott væri að fá nöfnin á krökkunum  sem fyrst - fara inn á skolahreysti.is og þar í "nafnaskráning efst til vinstri á síðunni.  
 
Gangi ykkur vel í undirbúningi og við hlökkum mikið til að sjá ykkur öll.   Endilega hringið í okkur eða sendið okkur vefpóst ef eh spurningar vakna. 
 
  Viljum minna  keppendur og kennara að fara vel yfir þrautir og reglur á skolahreysti.is.   Urðum örlítið vör við það í fyrstu mótunum að keppendur höfðu ekki kíkt nógu vel yfir þær.
 
Bestu kveðjur, Lára  gsm 663-1112  og Andrés gsm 663-1111






Þrautirnar
Úrslit móta
Hreystivellir
IceFitness
Landsbankinn er styrktaraðili Skólahreysti
Skólahreysti - info(hjá)skolahreysti.is - Facebook