Valmynd
Akureyri - Þelamörk og Siglufjörður sigruðu


Hraustir Akureyringar í Skólahreysti

Skólahreysti MS hélt áfram fimmtudaginn 12. mars í Íþróttahöllinni á Akureyri. . Alls mættu 120 unglingar til keppni og keppt var í tveimur riðlum. Tvöþúsund áhorfendur komu í höllina og studdu sína skóla og stemningin var frábær.

Árangur liðanna var góður og sigurvegarar í riðlunum tveimur voru Gr.Siglufjarðar og Þelamerkurskóli.

Í fyrsta riðlinum kepptu skólar utan Akureyrar. Krakkarnir mættu vel undirbúin til leiks. Það var Gr.Siglufjarðar sem sigraði undanúrslit 2008 og það var greinilegt að þeir ætluðu sér að halda fyrsta sæti í sínum riðli í ár. Þeim tókst það, náðu fyrsta sæti og hlutu 63 stig. Borgarhólsskóli frá Húsavík varð í öðru sæti með 48 stig og Gr á Blönduósi varð í þriðja sæti með 40 stig.

Í öðrum riðli öttu saman kappi skólar frá Akureyri. Það var Giljaskóli sem komst í úrslit 2008 og Þelamerkurskóli endaði þá í öðru sæti. Það var augljóst að Þelamerkurskóli hafði harm að hefna og ætlaði sér að ná fyrsta sætinu þetta árið. Þar sem keppnin var hörð og spennandi þá sást það ekki fyrr en eftir síðustu grein hver kæmist í úrslit. Þelamerkurskóli hampaði fyrsta sæti með 42 stig, Síðuskóli varð í öðru sæti með 36 stig og Giljaskóli í þriðja sæti með 33 stig.

Tólf lið komast í úrslit og eru eftirtaldir níu skólar komnir nú þegar : Varmalandsskóli, Gr.Ísafjarðar, Salaskóli, Heiðarskóli/Reykjanesbæ, Hvolsskóli, Foldaskóli, Háteigsskóli, Gr.Siglufjarðar og Þelamerkurskóli. Auk þess komast tveir stigahæstu/árangurshæstu skólarnir í úrslit fyrir utan þá sem hlutu fyrsta sæti í sínum riðlum.

Þann 19. mars næstkomandi munu skólar keppa á Egilsstöðum. Þar munu unglingar af Austurlandi sýna þrek og þol og þá kemur í ljós hvaða skóli af Austurlandi kemst í úrslit.

Þættir frá mótunum eru sýndir á laugardögum kl.18:00 á RÚV og endursýndir á sunnudögum og þriðjudögum.



Þrautirnar
Úrslit móta
Hreystivellir
IceFitness
Landsbankinn er styrktaraðili Skólahreysti
Skólahreysti - info(hjá)skolahreysti.is - Facebook