Valmynd

Um Hreystivöll 

Aldurstakmark á Hreystivöllinn er 8 ára. 

Yngri börn þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.

Þrautirnar reyna á allan  líkamann. Svo og styrk – úthald – samhæfni – jafnvægi og hugrekki.

Völlurinn er uppbyggður á þann hátt  að tveir notendur geta farið í gegnum þrautirnar í einu.

Þar sem Skólahreysti er sýnt í sjónvarpi sjá börn og unglingar hvernig best er að leysa þrautirnar. 

Þá byggist upp meiri áhugi hjá þeim að fara út og reyna með sér á Hreystivellinum og jafnvel æfa sig fyrir Skólahreysti.

Eins geta fullorðnir farið í gegnum þrautirnar og sýnt þeim yngri gott fordæmi.

Þar sem Hreystivellir eru, hafa íþróttakennarar nýtt þá í útiíþróttatíma og hefur það gefist vel. 

Röð þrauta og reglur eru sýnd á skiltum á myndrænan hátt .

Hreystivöllur hentar einnig vel sem alhliða leikvöllur.

Hreystivöllur uppfyllir allar grunnkröfur um öryggi leikvalla og leikvallatækja  skv. kröfum

EN 1176 – Leikvallatæki, EN 15312:2007 – Íþróttatæki á opnu svæði og 1177 um undirlag.

BSI á Íslandi sem er faggildur aðili fyrir leikvelli og leiktæki vottar Hreystivellina.

Þrautirnar
Úrslit móta
Hreystivellir
IceFitness
Landsbankinn er styrktaraðili Skólahreysti
Skólahreysti - info(hjá)skolahreysti.is - Facebook